Wednesday, April 01, 2009

eyra

maria at 2:19 PM

0comments

Monday, January 19, 2009

bloggiddíblogg
bloggbloggblogg

maria at 8:42 AM

1comments

Friday, May 02, 2008

Í dag ákvað ég að verðlauna mig fyrir að vera einhleyp. Já, það þarf ekki alltaf að vera leiðinlegt að vera einhleypur... ekki ef maður er bara nógu duglegur að gefa sér verðlaun. Ég fór semsagt yfir í Smekkleysu og keypti mér fjóra dýrðlega geisladiska og fékk mér síðan pad thai. Í dag fékk ég líka blóm í vinnunni, eina rauða rós af því að ég er svo sæt. Það var gaman en líka alveg ótrúlega vandræðalegt.

Á morgun er síðan stór dagur. Ég og Dagbjört erum að fara að skoða íbúð í Vesturbænum, réttara sagt íbúðina við hliðina á herra og frú Aagestad og ég hlakka mikið til. Ég frétti það í gær að þessi íbúð væri að losna og í rauðvínsvímu hljómaði þetta allt saman stórkostlega. Svo nú erum við að fara á morgun til að ákveða hvort við ætlum loksins að verða stórar og flytja að heiman. Að sjálfsögðu verður þetta ótrúlega fansí ef að úr þessu verður og ætlum við Helena að vera duglegar að drekka rauðvín og horfa mikið á Sex and the City.

Nú ætla ég að fara að sofa á hörðum sófa með flísteppi og hávaðasaman ískáp mér við hlið. Ekki slæmur félagsskapur það. Svo á morgun er ég að fara í afmæli og það verður brjálað partei.

maria at 2:34 PM

6comments

Thursday, April 03, 2008

Oj ég hef aldrei neitt að blogga um því að ég geri aldrei neitt nema vinna. Það eru samt alltaf að koma geggjað miklir celebar að kaupa kaffi hjá mér og það er geeeðveikt gaman sjitt hvað það er gaman!!

Í gær keypti ég með ógeðslega sexý, bleik hórunærföt. Ég ætla nefnilega að verða hóra. Ég nenni ekki að búa til kaffi lengur!

Í gær borgaði ég niður vísað mitt. Það var nú gaman.

Og hananú. Andleysi mitt er algjört og ég get ekkert skrifað.
Áðan keypti ég mér samt bláa strigaskó og ég er hætt að drekka mjólk og drekk bara sojamjólk.
Þetta eru helstu fréttirnar úr mínu lífi.

Nú er ég farin að taka til í hergerbinu mínu.

maria at 12:35 PM

7comments

Monday, March 24, 2008

Ég er orðin sjúk í að fara í leikhús. Það er svo ótrúlega langt síðan ég hef farið í leikhús að ég man ekki einu sinni eftir því. Jobbi er reyndar búinn að ætla að panta miða á Jesus Crist Superstar í tvo mánuði og nú fer að koma að því þegar LHÍ-mappan hans fína fer að vera tilbúin, en ég er bara ekkert sérlega spennt fyrir því. Nú þegar ég byrja loksins að fá útborgað, vinnandi manneskjan, þá ætla ég að vera duglegri að fara á flottar sýningar sem ég lét mér ekki einu sinni detta í hug áður. Svo ætla ég líka að kaupa mér svona lomo-myndavél og fullt af flottum fötum. Svo býst ég við að ég verði að borga lánin mín, obbobbobb. Það er eitthvað ofboðslega kósí að vera að vinna fulla vinnu, sérstaklega á Laugarveginum. Það er samt ekki kósí að taka strætó úr Grafarvogi á hverjum morgni klukkan átta. Á þeim stundum er ég einstaklega þakklát fyrir Ipodinn minn sem ég elska heitt.

Á laugardaginn fór ég í sumarbústað með Jobba og fjölskyldunni hans. Við spiluðum fram á nótt, fórum á sveitapöbb og á fjórhjól. Það var alltaf passað upp á að glasið mitt væri fullt af rauðvíni þannig að þær þrjár kippur sem við fórum með uppeftir voru enn á sínum stað þegar við fórum heim daginn eftir.

Í gær hélt Danan mín sæta síðan upp á afmælið sitt með pompi og prakt og það var geðveikt gaman. Eyrún Hanna frænkuskott komin heim og það er alltaf jafn gaman að sjá hana og auðvitað afmælisbarnið. Eftir afmælið fórum við á Kaffibarinn og dönsuðum þar fram á nótt þangað til að ég gafst upp á allt of háum hælaskóm og skrölti með nokkrum setupásum niður í leigubílaröð. Ég er brjáluð því ég gleymdi að taka með mér myndavél eins og alltaf. Leiðinlegt.

maria at 4:30 PM

3comments

Monday, March 17, 2008

Nú er ég að fara í vinnuna mína, því ég er komin með vinnu! Jei!
Ég er byrjuð að vinna á Te og Kaffi á Laugarvegi og það er svaka partýstuð

Um helgina fór ég í ótrúlega skemmtilegt partý hjá Evu og Sigga, þau eru yndisleg

Nú er ég farin í vinnuna
Bless

P.S. þetta er án efa skemmtilegasta blogg í heimi

maria at 1:51 AM

2comments

Thursday, March 06, 2008

Jei! Í gærkvöldi var tekin stórskemmtileg ákvörðun á mínu heimili. Við fjölskyldan höfum ákveðið að leggja land undir fót og fara til Lanzarote!
Ú BEIBE ég er svo spennt! Nú ætla ég að safna magavöðvum og vera massapía þegar við komum út.

Hér er rómantískt sólarlag í Lanzarote:

Og hér er hótelið mitt HABAHABA:

Þetta krútt ætlar ekki með til útlanda:

Hans verður sárt saknað:(

Nú er ég að fara að drekka bjór í hátíðlegu tilefni enduropnunar KB.

maria at 12:47 PM

1comments